ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 4m/s S

Lampard ætlar sér sigur á United

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:47 › 17. september 2008
Lampard hræðist ekkert

Lampard hræðist ekkert Mynd: Getty

Frank Lampard segir að Chelsea muni vinna Englandsmeistara Manchester United þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn hvort sem Cristiano Ronaldo taki þátt í leiknum eða ekki.

Ronaldo verður að öllum líkindum á bekknum hjá Evrópumeisturunum í kvöld þegar þeir taka á móti Villareal í meistaradeildinni. Talið er að hann verði svo kominn strax í byrjunarliðið eftir erfið meiðsli og uppskurð á sunnudaginn gegn Chelsea.

,,Ég veit ekkert hvernig ástandið er á Ronaldo og ég hef engar áhyggjur af því í rauninni," segir Lampard. ,,Ronaldo er líklega besti leikmaður í heimi eftir árangurinn á síðasta tímabili og það verður ekki tekið af honum."

,,En hvort United láti hann byrja eftir nokkra mánuði frá keppni get ég ekki sagt til um. Ef svo verður er það þeirra mál. Við erum nógu gott lið til að keppa við besta lið Manchester United. Við ættum ekki að vilja fá þá veikburða í heimsókn," segir Lampard.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.