ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Kimi þarf kraftaverk

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:43 › 17. september 2008
Ekkert gengur hjá Finnanum þessa daganna

Ekkert gengur hjá Finnanum þessa daganna Mynd: Getty

Kimi Raikkonen er sama og úr leik um heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 eftir að hafa ekki náð í stig í síðustu keppni. Hann var grátlega nálægt því að landa sigri á Spa-brautinni fyrir tveimur vikum en allt kom fyrir ekki.

,,Ég er búinn að gefa allt mitt í þetta en það er eins og ekkert gangi," segir núverandi heimsmeistarinn um stöðu sína í keppninni þar sem hann situr í 4. sæti.

,,Það er kominn langur tími síðan ég vann síðast og listinn yfir keppnir sem ég hef ekki náð í stig í er að stækka. Að fara í gegnum fimm keppnir án þess að ná í stig er mjög mikið. Það þarf engan Einstein til að sjá að það gengur ekki í baráttunni um titilinn," segir Raikkonen.

,,Þetta er samt ekki búið ennþá en ég þarf kraftaverk. Eins og ef elding fellur tvisvar á sama staðinn."



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.