ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Ferguson brjálaður

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:04 › 17. september 2008
Ferguson er ósáttur við ákvörðun knattspyrnusambandsins.

Ferguson er ósáttur við ákvörðun knattspyrnusambandsins. Mynd: DV

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, er brjálaður yfir þeirri ákvörðun enska knattspyrnusambandsins að draga rauða spjaldið sem John Terry, leikmaður Chelsea, fékk gegn Manchester City um síðustu helgi.

John Terry togaði þá Brasilíumanninn Jo niður þegar hann var við það að sleppa í gegn en Mark Halsey, dómari leiksins, mat það svo að Terry hefði verið aftasti maður. Á myndbandsupptökum sást þó að Terry var langt frá því að vera aftasti maður.

„Ég skil ekki hvernig þetta gat gerst. Ef þetta hefði verið leikmaður Manchester United hefði Hackett (formaður dómarasambandsins) ekki gert þetta,“ segir Alex en Halsey þarf í refsingarskyni að dæma í ensku annarri deildinni um helgina. Alex verður án Nemanja Vidic sem fékk einmitt rauða spjaldið í leiknum gegn Liverpool um helgina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.