Bítlabærinn nálgast titilinn

Kampakátir Keflvíkingar fagna.

Kampakátir Keflvíkingar fagna.

Miðvikudagur 17. september 2008 kl 22:59

Höfundar:

Keflavík eru komnir með aðra krumluna á Íslandsmeistaratitilinn eftir úrslit kvöldsins. Misvitrir spekingar hafa spáð því í allt sumar að blaðran á Suðurnesjum muni springa en Keflavíkurliðið er að þagga niður í þeim röddum með hverjum stórleiknum á fætur öðrum og í kvöld kláruðu þeir Blikana með stæl 3-1 á meðan eina ógnun þeirra í baráttunni um titilinn FH gerði í brækurnar og steinlá fyrir Fram 4-1.

Keflavík tók á móti Breiðablik seinnipartinn í leiðindaveðri sem setti svip sinn á leikinn. Keflvíkingar voru áberandi betri aðilinn í leiknum og sóttu mikið í fyrri hálfleik en það voru þó Blikar sem skoruðu fyrsta markið undir lok fyrri hálfleiks. Suðurnesjamenn hafa fengið kröftugt te í hálfleik því þeir komu dýrvitlausir til leiks og settu 3 mörk á gestina þrátt fyrir hvínandi mótvind. Enn einn öruggur sigur í höfn. Það þurfa einhverjar meiriháttar hörmungar og ævintýri að eiga sér stað til þess að titillinn endi ekki í Keflavík, eftir 35 ára bið.

Það er síðan spurning hvað leikmenn FH fengu sér í morgunmat því ekki var á þeim að sjá að þá hungraði nokkuð í titilinn þetta árið. Þeir virkuðu pakksaddir og út á þekju í ótrúlegum leik á móti Fram á Laugardalsvelli sem fram fór klukkan rúmlega níu í kvöld. Framarar gerðu sér lítið fyrir og unnu 4-1 og eiga hrós skilið fyrir góðan leik.

Eftir þessa tvo leiki eru Keflvíkingar með 46 stig eftir 20 leiki en FH með 38 stig eftir 19 leiki.

Keflavík 3 - 1 Breiðablik
0-1 Jóhann Berg Guðmundsson '43
1-1 Patrik Redo ´48
2-1 Guðmundur Steinarsson '62
3-1 Patrik Redo '81

Fram 4 - 1 FH
1-0 Björn Daníel Sverrisson (Sjálfsm.) '44
2-0 Paul McShane '52
3-0 Sam Tillen '54 (víti)
4-0 Ívar Björnsson '62
4-1 Dennis Siim '69


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Laugardagur 27. september 2008 kl 09:32

Mourinho þarf að sýna meiri virðingu

Föstudagur 26. september 2008 kl 15:24

Singapúr-brautin stórbrotin (Myndir)

Föstudagur 26. september 2008 kl 15:13

Alonso fljótastur í Singapúr

Föstudagur 26. september 2008 kl 13:30

Jóhann Berg á leið í atvinnumennsku?

Föstudagur 26. september 2008 kl 08:58

Robinho sparkar umboðsmanninum

Fimmtudagur 25. september 2008 kl 15:10

Alonso: Ekki besta lausnin

Fimmtudagur 25. september 2008 kl 11:11

Stabæk í úrslit

Fimmtudagur 25. september 2008 kl 08:36

Sigurmark Eiðs í gær (myndband)

Miðvikudagur 24. september 2008 kl 20:48

QPR lagði Villa

Miðvikudagur 24. september 2008 kl 19:10

FH ennþá í séns eftir sigur á Blikum

Miðvikudagur 24. september 2008 kl 13:26

Faldo gerði mistök

Miðvikudagur 24. september 2008 kl 12:03

Scolari stefnir á alla titla

Miðvikudagur 24. september 2008 kl 11:36

City ætlar sér Aguero

Miðvikudagur 24. september 2008 kl 09:10

Meistarar fyrir framan sjónvarpið?

Þriðjudagur 23. september 2008 kl 20:58

Stóru liðin áfram

Þriðjudagur 23. september 2008 kl 15:01

Riera: Torres og Keane munu skora

Þriðjudagur 23. september 2008 kl 14:35

Áfrýjun McLaren hafnað

Þriðjudagur 23. september 2008 kl 11:44

Tvær breytingar fyrir Frakklandsför

Þriðjudagur 23. september 2008 kl 11:01

Versta dómgæsla allra tíma stendur

Þriðjudagur 23. september 2008 kl 08:50

Ekki Faldo að kenna