Chelsea hóf keppni með látum í Meistaradeildinni með því að rassskella Bordeux 4-0 á Stanford Bridge í leik þar sem franska liðið sá aldrei til sólar. Fjórir leikmenn Chelsea skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín, tvö í sitthvorum hálfleik. Chelsea virka ógnarsterkir um þessar mundir og fátt virðist stöðva þá.
Liverpool áttu eitthvað eftir af lukkudísum eftir forkeppnina því liðið var stálheppið að halda 1-2 forrystu fyrri hálfleiks út allan leikinn. Gerrard reyndist, þegar upp var staðið, hetja Liverpool með því að skoða bæði mörk liðsins, annað þeirra stórglæsilegt, eftir að Marseille komust yfir á 23.mín. Maður leiksins var þó Jose Reina sem varði ítrekað á ótrúlegan hátt í seinni hálfleik.
Barcelona girtu sig loksins í brók og unnu öruggan 3-1 heimasigur á móti Sporting Lissabon. Þar sem Samuel Eto´o komst loks á blað en óvæntustu úrslit kvöldsins verða að teljast tap Rómverja 1-2, gegn CFR Cluj-Napoca frá Rúmeníu.
Úrslit kvöldsins:
A-riðill:
Chelsea 4 - 0 Bordeaux
Roma 1 - 2 CFR Cluj-Napoca
B-riðill:
Panathinaikos 0 - 2 Inter Milan
Werder Bremen 0 - 0 Anorthosis Famagusta
C-riðill:
Barcelona 3 - 1 Sporting
Basel 1 - 2 Shakhtar Donetsk
D-riðill:
Marseille 1 - 2 Liverpool
PSV 0 - 3 Atletico Madrid





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana
Klúður sem hann vill gleyma