ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Ranieri gefst upp á Tiago

11:28 › 31. júlí 2008
Ekki sá vinsælasti

Ekki sá vinsælasti Mynd: Getty

Claudio Ranieri þjálfari Juventus á Ítalíu hefur loks viðurkennt það sem stuðningsmenn hafa verið að reyna segja honum síðan hann keypti portúgalann Tiago frá Lyon. Að hann geti ekki neitt.

Tiago lék með Chelsea undir stjórn Jose Mourinho en var seldur til Lyon fyrir tveimur árum. Þaðan keypti Ranieri hann til Juventus þar sem Tiago hefur verið hreint skelfilegur.

,,Öll Evrópa virðist trúa því að hann sé frábær leikmaður en það skil ég ekki," segir Ranieri við Il Corriere Dello Sport og bætir við: ,,Stundum bara "floppa" menn og ekki er hægt að gefa ástæður fyrir því."

,,Margir stuðningsmenn hafa einnig gefið mér sitt álit á Tiago," segir Ranieri.

Talið er að Tiago hafi nú þegar yfirgefið herbúðir Juventus og sé á leiðinni heim til Portúgal.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.