Eiríkur Guðmundsson, stjórnarmaður í rekstrarfélagi meistaraflokks ÍA í knattspyrnu, hefur undanfarið safnað myndarlegu yfirvaraskeggi. Það væri kannski ekki frásögu færandi nema hvað að skeggið hyggst hann ekki skerða fyrr en Skagamenn ná stigum í hús í Landsbankadeildinni.
Þrátt fyrir að ÍA hafi haft sigur gegn finnska liðinu Honka í kvöld á Akranesvelli þá telur sá leikur ekki ekki þar sem engin stig fengust fyrir sigurinn.
„Nei, nei. Þetta verður að vera í Landsbankadeildinni, það verða að vera þrjú stig“ segir Eiríkur og hlær þegar DV Sport hafði samband við hann í kvöld eftir Evrópuleikinn.
„Þetta byrjaði eiginlega í kringum þjálfaraskiptin hjá okkur að ég lofaði þessu og ég hef staðið við það. En ég verð við öllu viðbúinn á miðvikudaginn næstkomandi þegar við mætum Fram í Laugardalnum. Ég fer með rakvélina og allar græjur með mér suður.“
Aðspurður hvort eiginkonunni sé ekki farið að lengja eftir þremur stigum í hús svo skeggið fari segir Eiríkur að hann haldi að hún sjái eftir því þegar þar að kemur.
„Hún var á móti þessu fyrst, en ég held hún sjái bara eftir því þegar það fer,“ segir Eiríkur í léttum dúr.
Eiríkur var allavega, líkt og aðrir Skagamenn, ánægður með frammistöðu liðsins í Evrópuleiknum gegn Honka í kvöld og vill meina að sínir menn hefðu auðveldlega getað sett 3-4 mörk í leiknum. Heppnin var hins vegar ekki með þeim og baráttan í deildinni það sem koma skal.
Næsta verkefni hjá Skagamönnum er hins vegar að reyna að næla í þrjú stig gegn Fram á miðvikudaginn á Laugardalsvelli, koma sér á sigurbraut í deildinni, upp úr botnsætunum og senda Eirík í rakstur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Sjötíu stúlkur keppa í skák
Skákdagur Íslands á morgun
Völvan: Stórt og fornfrægt íþróttafélag í Reykjavík gjaldþrota
Íslensk skíðakona alvarlega slösuð eftir slys á æfingu
Íslensk danspör sigursæl á Norðurevrópumeistaramóti