ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Keane ekki hættur að kaupa

12:41 › 31. júlí 2008
Hverja á ég að kaupa?

Hverja á ég að kaupa? Mynd: Getty

Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland er hvergi nærri hættur að eyða í nýja leikmenn. Hann ítrekar að þrír nýjir leikmenn muni koma til liðsins áður en tímabilið í ensku úrvalsdeildinni hefst að nýju.

Keane hefur nú þegar fengið til liðsins El Hadji Diouf og Steed Malbranque en virðist vera með fleiri leikmenn á teikniborðinu. Hann virðist þó hafa misst af tækifærinu að fá Younes Kaboul frá Tottenham.

Nú er Bobo Balde, varnarmaður Celtic í Skotlandi, orðaður við Sunderland. Balde er án samnings hjá Celtic eins og staðan er og getur Keane því fengið hann frítt.

,,Ég átta mig á að við erum með fullt af leikmönnum en við erum að kaupa gæða leikmenn," segir Keane við Sunderland Echo í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.