ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Hjarta mitt er hjá Tottenham

11:53 › 31. júlí 2008
Kominn í hvítt

Kominn í hvítt Mynd: Getty

,,Hluti af hjarta mínu hefur alltaf verið hjá Tottenham og þegar ég frétti að það hefði áhuga á mér vildi ég ekki fara neitt annað," sagði David Bentley nýjasti leikmaður Tottenham þegar hann var kynntur fjölmiðlum í Lundúnum í dag.

,,Ég reyndi hvað ég gat að komast hingað og var í símanum alla daga. Margir vinir mínir eiga ársmiða á völlinn meira að segja. Ég hugsaði eiginlega ekki um að fara í annað félag. Hjá Tottenham vil ég þroskast sem leikmaður," sagði Bentley.

,,Ég veit að ég kostaði sitt og nú þarf ég að borga það til baka inn á vellinum," sagði Bentley sem kostaði Tottenham 15 milljón pund.

Bentley lék um tíma með erkifjendum Tottenham í Arsenal. ,,Það breytir engu. Ég kom upp í gegnum unglingastarf Tottenham og hjá því er mitt hjarta," sagði Bentley.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.