FH komst áfram í UEFA-bikarnum í kvöld eftir glæsilegan 5-1 stórsigur á Grevenmacher í Lúxemborg.
Tryggvi Guðmundsson og Atli Guðnason skoruðu báðir tvö mörk fyrir FH og Björn Daníel Sverrisson bætti því fimmta við.
Fyrri leikur liðanna á Kaplakrikvelli fór 3-2 fyrir FH og fara FH-ingar því áfram í aðra umferð forkeppninnar með samanlögðum sigri 8-3
Tæpt á Skaganum
Litlu mátti muna að Skagamenn næðu að vinna upp þriggja marka forskot Honka frá Finnlandi á Akranesvelli í kvöld þegar liðið hafði betur í viðureign liðanna, 2-1.
Helgi Pétur Magnússon kom Skagamönnum yfir á 15. mínútu og Björn Bergmann Sigurðsson bætti við öðru marki á þeirri 49.
Honka náði hins vegar að minnka muninn á 72. mínútu, þvert gegn gangi leiksins, og þar við sat. 2-1 á Akranesi og Finnarnir fara áfram 4-2 í það heila.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana