Ryan Babel leikmaður Liverpool er allur að ná sér eftir meiðsli og lék vel með hollenska landsliðið í sigurleik gegn Kamerún í gærkvöldi. Babel vonast til þess að ná Ólympíuleikunum.
Babel reif liðamót í ökkla þegar hann var að æfa með Hollandi fyrir Evrópumótið og gat ekki leikið á því vegna meiðsla. Talið var að hann yrði ekki tilbúinn þegar enska úrvalsdeildinni skildi hefja leik 17. ágúst.
Hann hefur þó náð sér mun hraðar en reiknað var með og ætlar að vera með Hollandi á Ólympíuleikunum. Eitthvað sem Rafael Benitez stjóra Liverpool líka ekki vel.
Babel kom af bekknum í leiknum gegn Kamerún í gær, skoraði eitt mark og lagði upp annað. ,,Þetta gengur ágætlega hjá mér," sagði Babel um ökklan eftir leik. ,,Mér leið aldrei illa í honum á meðan leik stóð. Ökklin er greinilega að jafna sig," sagði Babel.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana