ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Stoke fær Sörensen

18:13 › 30. júlí 2008
Farin, þangað!

Farin, þangað! Mynd: Getty

Nýliða Stoke City í ensku úrvalsdeildinni hafa fest kaup á danska landsliðsmarkverðinum Thomas Sörensen. Sörensen hefur verið á reynslu undanfarið og hefur nú skrifað undir samning við félagið.

Stoke var talið líklegt til að kaupa Marton Fulop en þegar snuðra kom á þráðinn í þeim efnum snéru Stoke-arar sér að Sörensen og hafa klárað þann pakka.

,,Kaupin á Thomas eru frábær fyrir félagið," segir Tony Pulis "Íslendingahatarainn" geðþekki á heimasíðu Stoke. ,,Hann hefur leikið yfir 400 leiki í ensku úrvalsdeildinni og verið landsliðsmaður hjá Danmörku í lengri tíma," bætir hann við.

Thomas Sörensen missti sæti sitt hjá Aston Villa í fyrra þegar félagið var með Scott Carson að láni en þrátt fyrir að spila varla mínútu á Englandi hélt hann landsliðssæti sínu ávallt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.