Forráðamenn Aston Villa hafa staðfest að fyrirliði liðsins, Gareth Barry, verði hjá liðinu á komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni og ekkert verði af fyrirhuguðum kaupum Liverpool á leikmanninum.
Segja forráðamenn Villa að Liverpool-menn hafi ekki náð að klára kaupin á Barry fyrir tilskilinn frest sem liðið hafði gefið.
Talið er að Aston Villa hafi krafist 18 milljóna punda fyrir Barry og sá biti reyndist Liverpool um of, sérstaklega í ljósi þess að liðið keypti í gær Robbie Keane fyrir rúmlega 20 milljónir punda. Rafa Benitez stjóri Liverpool hafði áður sagt að liðið yrði að selja leikmenn til að fjármagna kaupin á Barry en nú virðist Aston Villa hafa slegið öllu í lás.
Spurning er hvernig stuðningsmenn Aston Villa taka Barry á komandi vikum og mánuðum, en eins og greint hefur verið frá bauluðu þeir á hann í hvert skipti sem hann snerti boltann í vináttuleik á dögunum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana