ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Fabregas styður Gallas

15:12 › 30. júlí 2008
Fabregas, Gallas og félagar á góðri stundu.

Fabregas, Gallas og félagar á góðri stundu. Mynd: Getty

Cesc Fabregas miðjumaður Arsenal vill að William Gallas haldi fyrirliðabandinu hjá félaginu en sér sjálfan sig bera það í framtíðinni.

Arsene Wenger á enn eftir að tilkynna fyrirliðann fyrir næstu leiktíð en mikil óvissa hefur ríkt um framtíð Gallasar sem fyrirliða. Það fór ekki vel í leikmenn liðsins á síðustu leiktíð þegar hann reifst og skammaðist yfir mistökum Gaels Clischy í leik gegn Birmingham og enn verr var á það litið þegar hann ætlaði að ganga af leikvelli í sömu andrá.

„Gallas er frábær fyrirliði en ég hef sýnt að ég geti sýnt þessa ábyrgð líka,“ segir Fabregas.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.