„Það var dálítið sérstakt að klæðast annarri treyju en þeirri gulu, en rosalega gaman engu að síður,“ sagði Bjarni Guðjónsson kampakátur við DV eftir leikinn í gærkvöldi.
„Það er frábær stemning í gegnum allan klúbbinn og það hafa allir verið mjög jákvæðir gagnvart komu minni.“ Svo til einsdæmi er að leikmaður leiki tvo leiki í sömu umferðinni en Bjarni gerði það að þessu sinni þar sem hann lék með Skagamönnum á sunnudag í tapi gegn FH. „Ég fékk allavega þrjú stig,“ grínaðist Bjarni með.
Logi Ólafsson þjálfari KR var ánægður að leikslokum. „Það var virkilega gott að ná að sigra í dag. Við lögðum upp með að stöðva skyndisóknir þeirra og það gekk mjög vel.“ Hann vildi ekki tjá sig mikið um tæklingu Ólafs Páls Snorrasonar í lokin. „Ég held að það hafi verið rétt að verðlauna hann með rauðu spjaldi þó ég efist um illan ásetning af hans hálfu.“
Hann stefnir ekki að því að hafa Bjarna Guðjónsson í hlutverki bakvarðar í næstu leikjum. „Skúli Jón hefur staðið sig mjög vel í þessari stöðu. Bjarni brá sér í þessa stöðu til bráðabirgða.“ Hann viðurkenndi að hægt hefði verið að dæma vítaspyrnu á KR þegar Bjarni Guðjónsson virtist bregða Ómari Hákonarsyni. „Það getur vel verið að þetta hafi verið víti en það er dómaranna að ákveða það,“ sagði Logi.
Ásmundur Arnarson þjálfari Fjölnis var vonsvikinn í leikslok. „Við vorum virkilega slakir, sérstaklega í fyrri hálfleik. Okkur gekk illa að halda boltanum. Þeir komu hins vegar grimmir til leiks og börðu á okkur. Þó fannst mér við koma vel inn í leikinn í síðari hálfleik og fengum fína möguleika á að skora. Annars var ég ósáttur við dómgæsluna og ég set stórt spurningamerki við vítaspyrnuna sem við fengum á okkur,“ sagði Ásmundur við DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana