David Bentley, leikmaður Blackburn Rovers, er við það að ganga í raðir Tottenham. Talið er að Tottenham muni kynna hann sem nýjan leikmann liðsins á morgun en fór í læknisskoðun í morgun.
Bentley, sem er 23 ára, lék gríðarlega vel fyrir Blackburn liðið á síðustu leiktíð en hann kom þaðan frá Arsenal eftir að hafa verið á láni hjá Norwich. Kaupverðið á kappanum eru 18 milljónir punda en kaupin voru fjármögnuð með sölunni á Robbie Keane til Liverpool.
Tottenham hefur styrkt sig mikið í sumar en nýlega gekk Luka Modric til liðs við félagið fyrir 16,5 milljónir punda. Þá hefur Roman Pavlyuchenko, leikmaður Zenit frá Pétursborg, verið orðaður við liðið en talið er að Juende Ramos, stjóri liðsins, vilji fá framherja áður en tímabilið á Englandi hefst.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana