Edwin Van der Sar, markvörður Englands- og Evrópumeistara Manchester United, sér mikið eftir því að hafa ekki farið sigurhring um Manchester-borg með Evrópubikarinn. Stuðningsmenn liðsins geta séð leikmennina taka sigurhring fyrir tímabilið.
Manchester United lagði Chelsea í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik meistaradeildarinnar og vann þar sinn þriðja meistaradeildartitil. Vikunni áður höfðu verið miklar óeirðir í Manchester-borg vegna leiks Rangers og Zenit í Evrópukeppni félagsliða. Því stöðvuðu yfirvöld skrúðgönguna sem fyrirhuguð var.
Leikmenn Manchester United leika æfingarleik gegn Juventus á Old Trafford fyrir tímabilið og munu leikmennirnir þar hlaupa sigurhring með Evrópubikarinn.
„Skrúðgangan er mikilvæg,“ segir Van der Sar. „Það verður gaman fyrir stuðningsmennina að sjá bikarinn gegn Juventus en það verður aldrei það sama og hefði það gerst beint eftir leikinn í Moskvu. Við afrekuðum stóran hlut og við viljum deila því með okkar fólki,“ segir Hollendingurinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana