ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Quaresma til Inter í vikunni

11:39 › 29. júlí 2008
„Svona, svona. Galdurinn er bara að segja eitt einn daginn og annað hinn daginn.“

„Svona, svona. Galdurinn er bara að segja eitt einn daginn og annað hinn daginn.“ Mynd: Getty

Yfirmaður íþróttamála hjá Inter Milan, Marco Branca, segir að Ricardo Quaresma, vængmaður Porto, muni ganga til liðs við Inter í lok vikunnar.

Jose Mourinho, þjálfari liðsins, ku vera mjög hrifinn af kantmanninum knáa sem heillaði mjög á Evrópumótinu í Portúgal.

Inter Milan hefur eytt megninu af sumrinu í að reyna að fá kappann til liðs við sig en hingað til hefur Porto neitað öllum tilboðum sem borist hafa í Quaresma.

„Hann er enn leikmaður Porto en í sannleika sagt held ég að hann verði leikmaður okkar innan skamms,“ segir Quaresma.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.