ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Markmaður S-Kóreu skorar úr útsparki (myndband)

20:34 › 29. júlí 2008
„Skoraði hann hvaðan segið þið?!"

„Skoraði hann hvaðan segið þið?!" Getty

Í síðasta mánuði heimtaði Didier Drogba, hinn órólegi framherji Chelsea, að fá að fara og leika fyrir Fílabeinsströndina á Ólympíuleikunum í Peking og sagði það vera mikinn heiður fyrir sig að spila fyrir þjóð sína.

Hann endurskoðar kannski afstöðu sína í dag eftir að myndir frá upphitunarleik Suður Kóreu og Fílabeinsstrandarinnar fóru að birtast á netinu.

Fílabeinsstrendingar töpuðu leiknum 2-1 þar sem markvörðu Suður Kóreu, Jung Sung-Ryong, tókst að opna markareikning sinn með því að skora úr útsparki rétt fyrir utan eigin vítateig.

Þar sem sögur af mikilli mengun og litlu skyggni streyma daglega frá fréttariturum í Peking getum við kannski búist við fleiri atvikum sem þessum á Ólympíuleikunum í næsta mánuði.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.