ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

KR og Fjölnir mætast í kvöld

11:32 › 29. júlí 2008
Fjölnismenn fögnuðu mikið eftir sigurinn gegn KR í 2. umferð

Fjölnismenn fögnuðu mikið eftir sigurinn gegn KR í 2. umferð Mynd: DV

Þréttándu umferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld með einum leik. KR og Fjölnir mætast í lokaleik umferðarinnar í Frostaskjóli klukkan 20.00.

Liðin mættust síðast í 2. umferð og þá hafði Fjölnir sigur á dramatískan hátt í Grafarvoginum. KR komst yfir í leiknum en Fjölnismenn jöfnuðu og skoruðu svo sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Vesturbæingar vilja eflaust hefna fyrir þær ófarir en tapi þeir í kvöld sitja þeir eftir í toppbaráttunni. Fjölnismenn geta með sigri komið sér aftur upp að toppliðunum. KR hefur 18 stig fyrir leikinn í kvöld en Fjölnir 21.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.