KR vann sanngjarnan sigur á nýliðum Fjölnis, 2-0, í lokaleik 13. umferðar Landsbankadeildar karla í kvöld. Gunnar Örn Jónsson og Björgólfur Takefusa skoruðu mörk KR.
Fjölnismenn lágu meira til baka en þeir hafa sýnt hingað til í deildinni og leyfðu KR að halda boltanum. Gunnar Örn Jónsson skoraði fyrsta mark leiksins á glæsilegan hátt þegar hann negldi knettinum viðstöðulaust með vinstri fæti framhjá Hrafni Davíðssyni í markinu.
Björgólfur Takefusa bætti svo öðru marki við í seinni hálfleik úr vítaspyrnu sem dæmd var á Hrafn Davíðsson í markinu. Hrafn tók stöðu Þórðar Ingasonar sem leikið hefur í markinu alla leikina fram að þessu.
Mörg umdeild atvik voru í leiknum og gátu Fjölnismenn tvisvar gert tilkall til vítaspyrnu. Ólafur Páll Snorrason fékk svo réttilega rautt spjald á lokamínútum leiksins.
Sigurinn lyftir KR upp í 5. sæti deildarinnar en Fjölnir situr í því 6. þegar 13 umferðir eru búnar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Gylfi Orra: Texti sem dómari skrifar er ekki partur af leiknum
Brynjar Björn spilar með KR í sumar
Minningarmyndband um Sigurstein Gíslason
Titlarnir níu engin tilviljun
„Ég hef náð öllum mínum markmiðum“