Jóhann Árni Ólafsson leikmaður Njarðvíkur í körfubolta hefur samið við þýska liðið Proveo Merlins og mun leika með þeim á næstu leiktíð.
Þetta kemur fram á karfan.is og segir Jóhann þar langþráðan atvinnumannadraum sinn vera að rætast. Logi Gunnarsson úr Njarðvík hefur leikið gegn Merlins á sínum tíma í Þýskalandi. Félagið leikur í Pro B deildinni sem er þriðja efsta deild Þýskalands.
,,Ég gerði eins árs samning við félagið og lít á þetta sem stökkpall í eitthvað stærra og meira. Ég og umboðsmaður minn ræddum það að ég færi fyrst í lið þar sem ég fengi tækifæri til þess að sanna mig,” segir Jóhann á karfan.is





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Clippers vann fyrsta slaginn um Los Angeles
Clippers landaði Chris Paul
Rándýrt en spennandi verkefni
Erfiður riðill hjá Íslandi
James og Durant æfa saman