ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Íslenskir við völdin í Svíþjóð

11:36 › 29. júlí 2008
Þóroddur sendir Hermann Geir Þórsson af velli í Kópavogsslagnum

Þóroddur sendir Hermann Geir Þórsson af velli í Kópavogsslagnum Mynd: DV-Gunnar

Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum U17 ára og yngri keppir nú á Norðurlandamótinu í knattspyrnu en fleiri Íslendingar eru þar í sviðsljósinu.

Landsbankadeildardómarinn Þóroddur Hjaltalín úr Þór dæmir á mótinu og með honum er B-aðstoðardómarinn Gylfi Már Sigurðsson sem flaggar fyrir Njarðvík.

Þóroddur dæmir nú sitt fyrsta tímabil í efstu deild og hefur þótt standa sig vel. Hann fékk ærið verkefni um daginn þegar hann dæmdi nágrannaslag Breiðabliks og HK í Landsbankadeildinni og komst einkar vel frá þeim leik.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.