ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Hatton skilur við þjálfarann

12:52 › 29. júlí 2008
Hatton er þjálfaralaus

Hatton er þjálfaralaus Mynd: Getty

Breski Hnefaleikakappinn Ricky Hatton og þjálfari hans til ellefu ára Billy Graham eru hættir að starfa saman. Graham verður því ekki við hlið Hattons þegar hann berst við Paulie Malignaggi í nóvember.

Graham hefur bundið enda á miklar vangaveltur Breta um framtíð sína. Hann ætlar að hætta að starfa við hnefaleika eftir einn bardaga. Hann mun fylgja Ojay Abrahams á föstudagskvöldið og hætta svo afskiptum af íþróttinni.

Faðir Hattons, Ray, var fljótur til að ausa lofi yfir Graham sem tók Ricky að sér sem táning og gerði hann að einum allra besta boxara Bretlands frá upphafi.

„Ricky og Billy funduðu í gær þar sem Billy sagðist ekki geta staðið í þessu lengur. Þetta var mjög tilfinningaþrungið fyrir þá báða því þeir hafa verið svo lengi starfandi saman,“ sagði Ray Hatton, faði Ricky.

„Þetta er sorgardagur. Billy Graham verður minnst sem einn af bestu hnefaleikaþjálfurum heims,“ bætti Ray við.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.