„Mér fannst mörkin sem Blikarnir skoruðu billeg,“ sagði Gunnar Oddsson þjálfari Þróttar við DV eftir 2-2 jafntefli Þróttar og Breiðabliks í gær.
„Við spiluðum ágætis vörn og spiluðum okkar taktík, settum pressu á mann með boltann og klipptum á framherja þeirra eins og sást því þeir gerðu ekki rassgat í leiknum,“ sagði Gunnar Oddsson þjálfari Þróttar við DV eftir leikinn í gær.
Honum finnst sínir menn á góðu róli í deildinni. „Við erum búnir að spila ágætlega yfir allt mótið. Nú fer hins vegar að reyna á breiddina þegar bönnin fara að detta inn og ég tel okkur hafa hana,“ sagði Gunnar sem var tiltölulega sáttur við jafnteflið.
Nánar er fjallað um leikinn í DV í dag





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Gylfi Orra: Texti sem dómari skrifar er ekki partur af leiknum
Brynjar Björn spilar með KR í sumar
Minningarmyndband um Sigurstein Gíslason
Titlarnir níu engin tilviljun
„Ég hef náð öllum mínum markmiðum“