Liðin tíu í Formúlu 1 hafa búið til félag sem þau öll eru í til að verja sinn rétt í íþróttinni en þetta gerðu liðin til að svara nýjum reglubreytingum forsvarsmanna Formúlunnar.
Ferrari-liðið sagði í yfirlýsingu að á fundi liðanna sem haldinn var í þeirra höfuðstöðvum hefði félagið verið stofnað með einróma samþykki liðanna tíu. Félagið mun starfa með alþjóða akstursíþróttasambandinu að vinna úr reglugerðum og auglýsingatekjum.
Liðin tíu hafa ákveðið að hitta aðal styrktaraðila Formúlunnar eftir að Max Mosley forseti FIA kynnti nýtt plan þar sem liðin munu fá helmingi minni fjárveitingu og minna eldsneyti yrði notað. Mosley var viðstaddur fundinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Raikkonen: Mig skorti aldrei metnað
Mistök að reka pabba sinn
„Erfitt að lýsa tilfinningunni“
Massa verður að sanna sig
Vann fyrir mömmu