ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Fifa græddi 31 milljarð á EM

12:42 › 29. júlí 2008
Lukkudýrið Trix er klárlega 250 milljón Evra virði

Lukkudýrið Trix er klárlega 250 milljón Evra virði Mynd: Getty

Evrópumótið í knattspyrnu sem haldið var í Austurríki og Sviss í júní var mikil tekjulind fyrir Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA. Keppnin skilaði 250 milljón Evrum í hreinan gróða eða því sem nemur 31,7 milljarði króna.

Þetta gaf UEFA út í dag og segir peningana verða nýtta til að fjármagna unglinga- og kvenna keppnir. Einnig mun peningum vera varið í dómara- og þjálfaramál ásamt öðrum kostnaði.

Martin Kallen sem stýrir stórviðburðum fyrir sambandið sagði að miða við keppnina sem fram fór í Portúgal hefði hann séð bætingar á næstum öllum sviðum. Hann var sáttur við áhorfendatölur í sjónvarpi, hversu margir notuðu almenningssamgöngur og að allt hafði gengið sem skildi.

Það sem miður fór var slæmt veður í byrjun keppninnar og miðasölur á svörtum markaði.

Hætt var við yfir 1,7 milljón miðaumsóknir vegna tengsla við svarta markaðinn. 1300 ólöglegir miðar voru svo gerðir upptækir á mótinu sjálfur.

„Svarti markaðurinn er augljóslega vandamál áfram. Þrátt fyrir alla okkar vinnu enduðu margir miðar þar. Við þurfum að sjá hvað við getum gert í framtíðinni til að stöðva þetta þó það verði erfitt að skrúfa algjörlega á þessi viðskipti,“ segir Kallen í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.