ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Ferrari notar hákarlauggann

17:46 › 29. júlí 2008
Massa á fullri ferð á Jerez

Massa á fullri ferð á Jerez Mynd: Getty

Ítalska blaðið La Gazzetta dello sport heldur því fram að Ferrari muni nota nýja vélarhlíf sem það kallar "hákarlauggann" í Ungverjalandskappakstrinum um næstu helgi en liðið prófaði hana í Jerez í síðustu viku.

Ugginn sem er upphaflega hönnun Red Bull-liðsins gerir F2008 bíl Ferrari sem Felipe Massa og heimsmeistarinn Kimi Raikkonen stöðugri. McLaren, Toyota og Honda hafa einnig prófað þessa nýju vélarhlíf en eru ekki líkleg til að taka hana upp á næstunni.

Talið er að Ferrari muni einnig nota "hákarlauggann" í Valencia í næsta mánuði en líklega ekki á Spa-brautinni né Monza því þær eru svo hraðar.

,,Titilbaráttan er ennþá opin upp á gátt og við munum prófa allt til að ná okkar markmiðum," segir Felipe Massa sem prófaði vélarhlífina síðastliðinn föstudag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.