Darren Bent framherji Tottenham segir þjálfara sinn, Juande Ramos, ekki þurfa að leita að nýjum framherja eftir söluna á Robbie Keane. Hann segir sig tilbúinn að fylla í skarð Írans sem fór til Liverpool fyrir ríflega 20 milljón pund.
,,Þegar lið missir leikmann eins og Keane eru það alltaf vonbrigði. Hann átti fimm góð ár í Tottenham en augljóslega tel ég mig geta fyllt í skarðið fái ég tækifæri til þess," segir Bent.
,,Maður þarf alltaf að vera tilbúinn, það veit ég. Svo lengi sem minnar þjónustu er þarfnað er ég ánægður. Ég lék ekkert skelfilega á síðasta tímabili en þegar ég fer inn á völlinn geri ég alltaf mitt besta," segir Bent sem er talinn hafa verið verstu kaup úrvalsdeildinnar á síðasta tímabili.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana