Rafael Benitez er hvergi nærri hættur að eltast við Gareth Barry, fyrirliða Aston Villa. Hann segir þó sig þurfa að selja leikmann til að fjármagna kaupin verði af þeim.
Benitez landaði í gær Robbie Keane og eyddi þar 20 milljónum punda. Hann segir sig þurfa að selja ætli hann sér að kaupa Barry og það ætli hann sér. Sala á Alvaro Arbeloa kemur hins vegar ekki til greina.
Sevilla eiga að hafa boðið 7 milljónir punda í hinn 25 ára gamla Arbeloa en Benitez hefur sagt hann fara hvergi þrátt fyrir orðróm um heimþrá stráksins.
„Við vissum að við þyrftum að selja menn til að kaupa nýja og það höfum verið verið að gera. Við erum enn að reyna ná í þá leikmenn sem eru á óskalistanum og ef við þurfum að selja menn til að nálgast þá verður það að vera þannig,“ segir Benitez.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana