Arnór Sveinn Aðalsteinsson fékk mikið högg þegar hann lenti í samstuði við Bjarka Frey Guðmundsson markvörð Þróttara um leið og hann skoraði fyrra jöfnunarmark Blikanna í gærkvöldi. „Ég fór í myndatöku í gær og það var ekkert að,“ segir Arnór Sveinn en hann rotaðist við höggið.
Hægri bakvörðurinn skemmtilegi fékk sendingu inn fyrir vörnina og potaði boltanum undir Bjarka í markinu áður en þeir skullu saman.
„Ég man eftir að hafa potað í boltann en ég sá hann aldrei fara yfir línuna. Ég man þannig eftir atvikinu en menn segja að ég hafi verið ansi ruglaður þegar ég lá eftir þetta,“ segir Arnór en höggið fékk hann á bringuna og hökuna.
„Þetta var helvíti mikið högg. Á leiðinni upp á spítala fór ég svo að finna fyrir þunga í brjóstkassanum og það var orðið erfitt að anda. Ég beit aðeins framan af tungunni en það var ekkert alvarlegt. Hún er aðeins bólgin en ekkert meira en það,“ segir Arnór sem ætlar sér á æfingu í kvöld.
„Ég fer og hitti strákana og tek eflaust létt skokk. Ég stefni allavega á að ná næsta leik,“ segir Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Markið sem hann skoraði var hans fyrsta í efstu deild.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Gylfi Orra: Texti sem dómari skrifar er ekki partur af leiknum
Brynjar Björn spilar með KR í sumar
Minningarmyndband um Sigurstein Gíslason
Titlarnir níu engin tilviljun
„Ég hef náð öllum mínum markmiðum“