„Ég tárast bara við að hugsa um það þegar ég kom í mark,“ sagði hlaupadrottningin Silja Úlfarsdóttir við DV í gær. Silja brast í grát um leið og hún tryggði FH sigurinn í lokagreininni, 4x400 metra boðhlaupi.
„Ég er alveg viss um að helmingurinn af FH-ingunum hefur fengið tár allavega í annað augað,“ sagði Silja ánægð sem leggur nú skóna á hilluna en það ákvað hún fyrir mótið.
„Þetta eru mjög blendnar tilfinningar. Það var gaman að vinna öll þessi hlaup en sorglegt að þetta sé að taka enda. Ég fór í startblokkina í 200 metra hlaupinu með kökkinn í hálsinum og alla fjölskylduna með mér. Ég þurfti nú að vinna til að sýna þeim hversu dugleg ég væri,“ sagði Silja og skellihló en hún var að drífa sig heim að pakka niður í ferðatösku þegar DV náði tali af henni í gær.
„Allir gömlu heiðursmennirnir úr FH mættu og gáfu mér gullmerki FH eftir hlaupið við mikla og skemmtilega athöfn. Svo gaf frjálsíþróttadeild FH mér ferð til Parísar kl 7:45 í fyrramálið þannig ég er á leiðinni heim að pakka. Loksins fæ ég frí með manninum mínum,“ sagði Silja kampakát að lokum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 






Chambers gæti snúið aftur á ÓL
Óðinn: Get kastað lengra en þetta
Gull hjá Gatlin - Tvö heimsmet í Tyrklandi
Bolt gæti reynt við fern gullverðlaun í Lundúnum
Íslendingur meistari í Crossfit í Svíþjóð
