ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Robinho vill yfirgefa Madrid

11:37 › 21. júlí 2008
Robinho er ósáttur við Real

Robinho er ósáttur við Real

Brasilíski sóknarmaðurinn Robinho vill yfirgefa Real Madrid til þess að ganga til liðs við Chelsea.

Þessu lýsti kappinn yfir eftir að í ljós kom að Real hafnaði tilboði enska úrvalsdeildarliðsins í kappann. Robinho hefur einnig verið orðaður við Barcelona en honum finnst hann vanmetinn hluti af leikmannahópnum.

Ólíklegt þykir að hann muni fara til Katalóníurisanna og því mun Chelsea þykja líklegur áfangastaður fyrir leikmanninn snjalla en þar á bæ hefur áþreifanlega þótt vanta meiri sköpunargleði í sóknarleiknum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.