ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Meiðslamartröð lokið

11:30 › 21. júlí 2008
Arteta var mikið meiddur í fyrra

Arteta var mikið meiddur í fyrra

Mikel Arteta, leikmaður Everton, er vongóður um að meiðslamartröð hans sé lokið en hann missti af stórum hluta af síðustu leiktíð sökum nárameiðsla.

Spánverjinn lék afar vel með Everton á þar síðustu leiktíð og hann er vongóður um að hann nái aftur sömu hæðum í leik sínum og þá á komandi leiktíð. Arteta kom inn á sem varamaður í æfingaleik með Everton gegn Cambridge í vikunni.

„Mig langaði að spila í 15 eða 20 mínútur. Ég gerði það og fann ekki fyrir neinu svo það eru góðar fréttir,“ segir Arteta. „Ég er tveimur vikum á undan áætlun en ég veit að ég þarf að fara rólega til þess að leyfa líkamanum að jafna sig,“ segir Arteta.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.