Makelele er farinn

Makelele hefur yfirgefið herbúðir Chelsea.

Makelele hefur yfirgefið herbúðir Chelsea. Mynd: Getty.

Mánudagur 21. júlí 2008 kl 08:45

Höfundur: Einar Þór Sigurðsson (einar@dv.is)

Franski miðvallarleikmaðurinn Claude Makelele hefur yfirgefið herbúðir Chelsea til að ganga til liðs við franska liðið Paris st. Germain. Þessi 35 ára Frakki gekk til liðs við Chelsea frá Real Madrid árið 2003 á 16,8 milljónir punda og er án nokkurs vafa einn albesti miðvallarleikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeilarinnar.

Makelele vann deildina tvisvar með Chelsea og lék 217 leiki með liðinu en í þeim skoraði hann tvö mörk. Chelsea sendi frá sér yfirlýsingu vegna leikmannsins þar sem fram kemur að félagið vilji þakka Makelele fyrir vel unnin störf hjá félaginu.

„Allir hjá Chelsea vilja þakka Claude fyrir þá þjónustu sem hann hefur veitt.
Claude hefur verið lykilmaður í velgengni Chelsea undanfarin ár og við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni. Hann verður ávallt velkominn aftur á Stamford Bridge, sem leikmaður eða vinur félagsins.“

Síðasti leikur Makelele fyrir Chelsea var tapleikurinn gegn Manchester United í úrslitum Meistaradeildarinnar í vor.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 20:39

Með skegg þar til Skaginn sigrar

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 20:15

FH áfram, ÍA úr leik

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 18:41

Keane og Torres tengjast

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 14:41

Ancelotti segir engan Scheva

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 13:55

Babel nær líklega Ólympíuleikunum

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 13:08

Guðni Rúnar í Stjörnuna

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 12:41

Keane ekki hættur að kaupa

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 11:53

Hjarta mitt er hjá Tottenham

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 11:36

Friedel fór ekki vegna Ince

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 11:28

Ranieri gefst upp á Tiago

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 11:24

Gallas fer hvergi

Fimmtudagur 31. júlí 2008 kl 10:27

Ronaldo ætlar til Real

Miðvikudagur 30. júlí 2008 kl 19:01

Hik er sama og tap, Barry fer ekki fet

Miðvikudagur 30. júlí 2008 kl 18:13

Stoke fær Sörensen

Miðvikudagur 30. júlí 2008 kl 16:37

Corradi til liðs við Emil og félaga

Miðvikudagur 30. júlí 2008 kl 15:37

Ben Haim til City

Miðvikudagur 30. júlí 2008 kl 15:12

Fabregas styður Gallas

Miðvikudagur 30. júlí 2008 kl 14:59

Fylkir fær liðstyrk

Miðvikudagur 30. júlí 2008 kl 14:27

Bentley við það að ganga í raðir Tottenham

Miðvikudagur 30. júlí 2008 kl 11:39

„Ég fékk allavega þrjú stig“