ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Leifur: Lögðum leikinn svipað upp

22:42 › 21. júlí 2008
Leifur Garðarsson

Leifur Garðarsson Mynd: DV

„Það þarf að kafa ofan í hver munurinn var á liðinu í dag og gegn FH,“ sagði Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis við DV eftir tapleik sinna manna gegn Fram, 3-0, í kvöld.

Fylkir lék mjög vel gegn FH í síðustu umferð þar sem liðið lagði bikarmeistarana á heimavelli. ,,Menn mættu brjálaðir til leiks í Kaplakrika, berjast eins og ljón og gera svo í brækurnar hér. Við lögðum leikinn svipað upp, spiluðum aftur 4-3-3 gegn sama kerfi þannig þetta hefði átt að vera svipaður leikur en var það nú svo sannarlega ekki,” sagði Leifur

Nánar er fjallað um leikinn í DV á morgun



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.