ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Ívar: Börðumst fyrir hvorn annan

22:34 › 21. júlí 2008
Ívar Björnsson í baráttunni í kvöld.

Ívar Björnsson í baráttunni í kvöld. Mynd: DV

,,Nú er komin ný umferð og þá þurfum við að fara hysja upp um okkur brækurnar,“ sagði kátur Ívar Björnsson við DV eftir 3-0 sigur Fram á Fylki í kvöld.

„Þetta var gott hjá okkur í dag. Menn voru tilbúnir að berjast og verjast fyrir hvorn annan,” sagði Ívar brosmildur.

,,Við áttum erfitt prógram undir lok fyrri umferðarinnar og töpuðum þar leikjum sem við vorum kannski ekkert verri aðilinn í. Það datt lítið fyrir okkur í þeim leikjum en í dag var þetta allt að falla fyrir okkur. Nú erum við komnir með 18 stig en höldum okkur við jörðina,” sagði Ívar

Nánar er fjallað um leikinn í DV á morgun



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.