ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Guðjón rekinn frá ÍA

11:04 › 21. júlí 2008
Guðjón rekinn frá ÍA

Guðjón rekinn frá ÍA Mynd: DV

Knattspyrnuþjálfaranum Guðjóni Þórðarsyni hefur verið sagt upp störfum hjá ÍA og hefur félagið fengið leyfi til þess að ræða við tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni sem leika með FH um að taka við stjórn liðsins.

ÍA tapaði gegn Breiðabliki 6-1 í gær og situr liðið í 11. sæti Landsbankadeildarinnar.

Yfirlýsing frá ÍA:

Stjórn rekstrarfélags Knattspyrnufélags ÍA hefur ákveðið að rifta samningi sínum við Guðjón Þórðarson og lætur Guðjón af störfum nú þegar. Knattspyrnufélag ÍA hefur fengið leyfir FH til að ræða við Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni um að taka við þjálfun liðsins og verður nánari frétta að vænta af þeim viðræðum þegar líður á daginn. Stjórn rekstrarfélagsins færir Guðjóni Þórðarsyni bestu þakkir fyrir það sem hann hefur af ósérhlífni lagt að mörkum til félagsins og óskar honum farsældar og gæfu á komandi árum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.