Fram lagði Fylki 3-0 í Landsbankadeildinni í kvöld og tókst þar að rjúfa þriggja leikja taphrinu. Þróttur vann Fjölni í markaleik í Grafarvogi og þá vann Grindavík sinn fyrsta heimasigur í ár.
Joseph Tillen skoraði tvö mörk fyrir Fram sem vann sanngjarnan sigur á Fylki, 3-0, í kvöld. Hjálmar Þórarinsson kom sér loks aftur á blað með fínu marki eftir undirbúning Ívars Björnssonar. Fram í 7. sæti með 18 stig en Fylkir í því 10. með 12 stig.
Grindavík vann sinn fyrsta heimasigur þegar liðið lagði KR, 2-1. Gunnar Örn Jónsson skoraði fyrstu tvö mörkin í sitthvort netið en sigurmarkið skoraði Scott Ramsey fyrir Grindavík sem er nú í 8. sæti með 17 stig. KR er með stigi meira í 6. sæti.
Markasúpa var í Grafarvogi þar sem Þróttarar stálu sigrinum með marki Sigmundar Kristjánssonar í uppbótartíma, 4-3. Pétur Georg Markan kom Fjölni yfir 3-2 á 85. mínútu en ótrúlegur sigur Þróttar staðreynd. Þróttur í 9. sæti með 16 stig en Fjölnir í því 4. með 21 stig.







Minningarmyndband um Sigurstein Gíslason
Titlarnir níu engin tilviljun
„Ég hef náð öllum mínum markmiðum“
Hægt að veðja á íslenska æfingaleiki
Guðjón Þórðarson ráðinn þjálfari Grindavíkur