Jose Mourinho, þjálfari Inter Milan viðurkennir að erfitt verði að fá Frank Lampard leikmann Chelsea til félagsins fyrir tímabilið. Lampard hefur þrálátlega verið orðaður við Inter Milan að undanförnu. Lampard sem er þrítugur er góður vinur Mourinho en þegar hefur Chelsea neitað um 8 milljóna punda tilboði í kappann. „Fyrir hann er auðveldara að spila fyrir Chelsea út samningstíman en að hætta skyndilega núna. Sennilega yrði auðveldara fyrir hann að koma á næsta ári,“ segir Mourinho.
Erfitt að fá Lampard
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Klúður sem hann vill gleyma
Neymar búinn að skora 100 mörk á ferlinum
Köttur stal senunni á Anfield
Suarez ekki í byrjunarliði Liverpool
Róttæk hönnun á nýja keppnisbíl Ferrari