ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Milan hafnaði tilboði Chelsea

10:15 › 20. júlí 2008
Framtíð Kaká mikið í umræðunni þessa dagana

Framtíð Kaká mikið í umræðunni þessa dagana Getty

Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, hefur staðfest við fjölmiðla að félagið hafi hafnað risatilboði Chelsea í Brasilíumanninn Kaká.

Eins og DV Sport greindi frá í gær var talið að Kaká gæti verið á leiðinni á Stamford Bridge í kjölfar risatilboðs sem Chelsea hefði gerð Milan.

„Það er satt að Chelsea kom með stórt tilboð í leikmanninn, en ég mun ekki segja hversu hátt það var,“ sagði Galliani í ítölskum fjölmiðlum.

„En við höfnuðum tilboðinu. Silvio Berlusconi, forseti Milan, vill ekki selja Kaká, alveg eins og hann vildi ekki selja Andriy Schevchenko til Real Madrid árið 2001,“ bætti Galliani við og kom þar með upp um tilraunir Madrid til að næla í Úkraínumanninn kná sem nú leikur fyrir Chelsea.

Kaká var hinsvegar ekki jafn handviss í sinni sök og varaforsetinn.

„Þegar ég sný aftur til Ítalíu úr fríi þá veit ég fyrir víst hvað gerist, en í augnablikinu er ekkert ljóst. Það eru tvö lið sem hafa áhuga á mér, en ég vil ekki ræða það frekar. “ sagði Kaká vegna málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.