Stjórnarformaður Manchester United, David Gill, segir að Cristiano Ronaldo verði ekki boðin launahækkun í kjölfar umræðunnar sem staðið hefur yfir í allt sumar um að hann sé á leið til Real Madrid.
„Hann skrifaði undir nýjan samning fyrir 18 mánuðum síðan, og miðað við hvar hann er staddur í launastiganum hjá félaginu, þá hefur hann nú ekki yfir miklu að kvarta.“ sagði Gill.
Aðspurður hvort hann teldi að hegðun Ronaldos í sumar væri til þess gerð að tryggja sér betri samning hjá félaginu neitaði Gill að útiloka neitt.
„Hugsanlega var það svo, en ekkert endilega. En ég get sagt að ef launaupphæðirnar sem Real Madrid segjast ætla að bjóða eru sannar, þá munum við ekki fara nálægt þeim. Það væri algjör geðveiki,“ sagði Gill, en sagt hefur verið að Madrid sé reiðubúið að borga Portúgalanum um 200 þúsund pund, eða 31,6 milljón krónur, á viku.
Rio erfir ekkert við Ronaldo
Rio Ferdinand varnamaður United segir að hann muni taka vel á móti Ronaldo þegar hann kemur snýr aftur til liðsins úr sumarfríi. Hann viðurkennir þó að slúðrið í kringum Ronaldo og Madrid hafi varpað skugga yfir liðið, og að það hafi ekki getað notið sigranna frá síðasta tímabili til fullnustu vegna þessa.
„Leikmennirnir geta ekki beðið eftir að Ronaldo snúi aftur. Það verða engin vandamál milli okkar og Ronaldo því við stöndum fast að baki því sem Sir Alex Ferguson hefur sagt allan tímann. Ronaldo er frábær náungi og honum hefur aldrei lent saman við neinn í liðinu, og ég er viss um að svo verði áfram.“ sagði Ferdinand.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana
Klúður sem hann vill gleyma
Neymar búinn að skora 100 mörk á ferlinum
Köttur stal senunni á Anfield
Suarez ekki í byrjunarliði Liverpool