ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Kaká vill fara til Chelsea

11:32 › 19. júlí 2008
Kaká til Chelsea fyrir metfé?

Kaká til Chelsea fyrir metfé? Getty

Sérlegur ráðgjafi brasilíska snillingsins Kaká hjá AC Milan heldur því fram að leikmaðurinn vilji ólmur ganga til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea.

Þrálátar sögusagnir um risatilboð Chelsea í leikmanninn hafa gengið í sumar og hafa tölur eins og 80 milljónir punda verið nefndar sem hugsanlegt kaupverð. Það nemur rúmlega 12,6 milljörðum króna og yrði Kaká þá langdýrasti leikmaður sögunnar.

Sky Sports greinir frá því að með kaupum sínum á Ronaldinho séu fjárhagsmálin í lamasessi hjá Milanóliðinu, og þeir tilbúnir til að hlusta á hvaða tilboð sem er í stjörnuleikmann sinn.

Ráðgjafinn, Diogo Kotscho, er sannfærður um að hægt verði að ná samningum sem fyrst til að tryggja Kaká nýja áskorun í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
„Real Madrid bauð 71 milljón punda á síðasta ári, og Milan hugsaði ekki einu sinni um tilboðið heldur neituðu því strax,“ er haft eftir Kotscho í The Guardian í dag.

„En tímarnir hafa breyst og núna finnst okkur eins og hlutirnir gætu farið að gerast. Eins og staðan er í dag þá er sá peningur sem fæst fyrir leikmanninn núna virkilega góður fyrir alla aðila. Og Chelsea er klúbburinn til að vera hjá núna, þeir eru að byggja upp lið sem getur unnið allt.“ segir Kotscho að lokum.

Líklegt verður þó að teljast að AC Milan fari frekar í gjaldþrot en að selja stjörnuleikmann sinn, sem er í sannkallaðri dýrlingatölu hjá stuðningsmönnum liðsins um allan heim.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.