Knattspyrnudeild Breiðabliks sendi í dag yfirlýsingu þar sem hún segir Börk Edvardsson yfirmann afrekssviðs hjá Val segja rangt frá í Fréttablaðinu í dag.
Börkur segir þar Val hafa spurst óformlega fyrir um hollenska framherjann Prince Rajcomar. Blikar segja fyrirspurnina hafa verið formlega og útskýra það nánar í yfirlýsingunni.
Yfirlýsing Breiðabliks:
- Ummæli formanns knattspyrnudeildar Vals varðandi fyrirspurn Vals um Prince Rajcomar
Knattspyrnudeild Breiðabliks vill koma eftirfarandi á framfæri í tengslum við svar formanns knattspyrnudeildar Vals þegar hann var spurður af fréttamanni Vísis um það hvort Valur hefði leitað eftir því að fá Prince Rajcomar frá Breiðabliki:
Í fyrsta lagi er það ekki rétt að spurst hafi verið óformlega fyrir um Prince Rajcomar. Þann 8. júlí bar Valur upp formlega fyrirspurn um lán eða leigu á leikmanninum.
Í öðru lagi vita Valsmenn ekki hvað leikmaðurinn er með í laun nema þeir hafi haft samband við hann sjálfan í heimildarleysi og fengið það uppgefið sem er alvarlegt brot á reglugerðum KSÍ.
Í þriðja lagi er það því ekki rétt að ástæðan fyrir því að ekkert varð úr félagsskiptum sú að Valsmenn hafi ekki “treyst sér í launapakkann”. Ástæðan er sú að Breiðablik hafnaði beiðni Vals um viðræður um leikmanninn. Það má bæta því við að það þætti saga til næsta bæjar ef Valur treysti sér ekki til að semja við leikmann vegna launakostnaðar.
Að framansögðu er ljóst að rangt var skýrt frá málsatvikum af hálfu formanns knattspyrnudeildar Vals.





Minningarmyndband um Sigurstein Gíslason
Titlarnir níu engin tilviljun
„Ég hef náð öllum mínum markmiðum“
Hægt að veðja á íslenska æfingaleiki
Guðjón Þórðarson ráðinn þjálfari Grindavíkur