Forsvarsmenn Ólympíuleikana í Peking hafa gefið út reglubók fyrir áhorfendur sem ætla sér að sjá leikana. Þar eru allir borðar afþakkaðir.
Hvort sem borðarnir séu einungis af góðu gerðir en ekki ætlaðir til áróðurs eru allir borðar afþakkaðir á leikunum. Forsvarsmenn leikanna eru hræddir um að áhorfendur sem vilji vera til vandræða grípi alla athygli og geri umfjöllun í ágúst neikvæða.
Reglurnar eru svipaðar og hafa verið á síðustu tveimur leikum þar sem bannaðir hafa verið borðar sem eru 2 metrar á lengd og 1 á breidd. Í Peking eru þó allir borðar vinsamlega afþakkaðir.
„Við biðjum alla um að skila borðana eftir heima. Það þurfa allir að hjálpast að til að gera leikana sem jákvæðasta fyrir áhorfendur og keppendur,“ segir yfirmaður kínversku Ólympíunefndarinnar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Chambers gæti snúið aftur á ÓL
Óðinn: Get kastað lengra en þetta
Gull hjá Gatlin - Tvö heimsmet í Tyrklandi
Bolt gæti reynt við fern gullverðlaun í Lundúnum
Íslendingur meistari í Crossfit í Svíþjóð
