Breski spretthlauparinn, Dwain Chambers, fær ekki úr því skorið hvort hann fái að keppa á Ólympíuleikunum fyrr en á fimmtudaginn en réttarhöldum hans var frestað um einn dag.
Chambers var tekinn fyrir lyfjamisnotkun árið 2003 og fékk tveggja ára bann frá íþróttinni. Enn fremur er breska Ólympíusambandið með sín eigin lög sem segja að íþróttamaður tekinn fyrir lyfjanotkun fái aldrei að keppa fyrir hönd Bretlands á Ólympíuleikum.
Chambers sigraði 100m hlaupið á breska meistaramótinu um helgina og er því búinn að vinna sér inn keppnisrétt á Ólympíuleikunum ef ekki væri fyrir þessi hjálög Bretanna. Þá hefur Chambers verið langbesti spretthlaupari Breta síðustu ár og er það enn eftir bannið en honum hefur gengið mjög vel í ár.
Mál Chambers er nú fyrir hæstarétti þar sem hann reynir að fá banninu aflétt en hann er fyrsti íþróttamaðurinn til að reyna það.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Chambers gæti snúið aftur á ÓL
Óðinn: Get kastað lengra en þetta
Gull hjá Gatlin - Tvö heimsmet í Tyrklandi
Bolt gæti reynt við fern gullverðlaun í Lundúnum
Íslendingur meistari í Crossfit í Svíþjóð
