ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Bolt og Isinbayeva líklegust

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:31 › 11. nóvember 2008
Bolt sló heimsmet Michaels Johnson sem ekki átti að vera hægt að slá

Bolt sló heimsmet Michaels Johnson sem ekki átti að vera hægt að slá Mynd/Getty

Þau Usian Bolt frá Jamaíka og Jelena Isinbayeva frá Rússlandi þykja einna líklegust til að hreppa útnefningu Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins sem frjálsíþróttamaður og -kona ársins sem tilkynnt verður 23. nóvember. Usian Bolt sló í gegn á Ólympíuleikunum í Peking og vann þar bæði 100 og 200 metra hlaupin á nýju heimsmeti. Jelena Isinbayeva frá Rússlandi hafði ótrúlega yfirburði í stangarstökki á árinu.

Eina keppnin hennar hefur verið í raun að bæta eigin heimsmet. Hún tryggði sér sigur í Peking í aðeins 3 stökkum og jú, setti svo enn eitt heimsmetið.

Tilnefndir karlar eru Kenenisa Bekele, Eþíópíu, Dayron Robles, Kúbu, og Usian Bolt.
Í kvennaflokki eru fyrir utan Isinbayevu þær Pamela Jelimo, Keníu, og Tirunesh Dibaba frá Eþíópíu tilnefndar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?