ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Enski: Botninn mætir toppnum

09:03 › 31. október 2008
Berbatov átti tilþrif vikunnar

Berbatov átti tilþrif vikunnar AFP

Vera má að sama fyrirsögn hafi verið í tímaritinu sáluga, Bleikt og blátt, en hérna er átt við umtöluðustu liðin í enska boltanum í dag; botnliðið Tottenham og toppliðið Liverpool sem mætast á White Heart Lane í Lundúnum.

Keane kemur heim

Ætla mætti að leikmenn Liverpool andi að sér helíum á Melwood-æfingasvæðinu svo mikið talar Benitez um að halda þeim á jörðinni eftir gott gengi liðsins. Hann gerir eitthvað rétt með liðið þessa dagana því Liverpool hefur ekki verið svona sannfærandi í leik sínum í háa herrans tíð. Rafa virðist síðan loksins hafa fengið nóg af getuleysi Robbies Keane og setti hann á bekkinn í síðasta leik. Afgerandi ákvörðun hjá stjóranum með tilliti til þess að Fernando Torres var ekki með. Keane yrði svo sem ekki fyrsti framherjinn sem koðnar niður í rauðu treyjunni. Markamaskínur eins og Morientes, Cisse og Anelka upplifðu eyðimerkurgöngu hjá Liverpool og sama má segja um Dirk Kuyt sem skoraði út í eitt í Hollandi en er búinn að vera, þar til nýverið, álíka hættulegur í vítateignum og skátastelpa á Sniglasamkomu. Ekki er reiknað með endurkomu Torres í leiknum og verður fróðlegt að sjá hvort Írinn ískaldi verði einnig látinn hvíla gegn gömlu félögunum.

Harry Potter

Stjóri Tottenham, Harry Redknapp virðist einnig búa yfir einhverri glaðloftstegund. Ljóst er að kryfja þarf kauða rækilega þegar hann fer yfir móðuna miklu. Það er ekki að ástæðulausu að Harry er talinn jafnoki nafna síns Potters. Áhrifin sem hann hefur á þau lið sem hann tekur að sér eru göldrum líkust. Hið vel mannaða lið Tottenham var að spila eins og 4. flokkur Selfoss framan af móti og vermir botnsætið verðskuldað. Harry Houdini þurfti aðeins að láta sjá sig í stúkunni í leiknum á móti Bolton og Spurs unnu loks sinn fyrsta leik. Síðan tók við útileikur á móti Arsenal þar sem töfrasprotanum var veifað ótt og títt og Tottenham náði ævintýralegu jafntefli 4-4. Liðið var ekkert sérlega sannfærandi í leiknum en sýndi og sannaði að mikil gæði eru í liðinu og ef strengir verða stilltir í réttan dúr og moll, gæti Tottenham spilað jólalögin um miðja deild.

Loforð um leik

Hér með skal því lofað að setningin „Varla má sjá hvort liðið er á toppi og hvort liðið á botni deildarinnar“ verður brúkuð á einhvern máta í lýsingu á leik liðanna á laugardaginn, því bæði lið eru með mikinn byr í seglum þessa dagana. Spurningin er sú hvort töfrar Harrys nái að dempa sjálfstraust Liverpool og galdra burtu lukkudísir Benitez sem fylgt hafa liðinu fram eftir móti. Ef það tekst kæmi það ekki á óvart ef Tottenham næði í stig, jafnvel þrjú.

Heilög þrenning United

Manchester United tekur á móti Hull sem var minnt á það, með duglegri rassskellingu fyrir framan sína aðdáendur á miðvikudaginn, hvaða lið eru nýliðar og hvaða lið eru í meistaraslagnum. Hætt er við því að flengingar haldi áfram á laugardaginn þegar Hull mætir meisturunum á útivelli. Man.Utd sýndi mátt sinn og megin á móti sponsor-lausum Björgólfum frá London. Þótt Ronaldo hafi skorað bæði mörkin gegn West Ham var það framtak Berbatovs sem stal senunni. Ekki nóg með að hann hafi fíflað varnarmann ótrúlega og lagt upp seinna markið, heldur gerði hann það nánast geispandi. 99% leikmanna hefðu verið með háspennufrygðarglott aftur á hnakka eftir þessi tilþrif við endalínuna en Berbatov virtist álíka spenntur í framan og Barði í Bang Gang. Hull á ekki von á góðu ef hin heilaga þrenning, Rooney, Ronaldo og Berbatov, verður í standi. Og reyndar má halda því fram að United ætti hreinlega ekki að geta tapað leik ef þessir þrír eiga allir toppleik á sama tíma. Hvaða vörn á að stoppa þá?

Chelsea ennþá gott

Felipe Scolari sagði Chelsea ennþá gott lið eftir síðustu helgi og leikmenn tóku hann á orðinu á móti Hull. Þeir bláu eru núna dýróðir eins og bolabíturinn í Tomma og Jenna og munu glefsa í hælana á Liverpool þangað til þeir ná þeim. Næsta fyrirstaða í þeim eltingarleik er Sunderland sem kemur í heimsókn á Stanford Bridge. Þetta verður erfiður leikur fyrir lærisveina Roys Keane sem hafa átt ágæta spretti framan af móti. En þeir eru líka brothættir og töpuðu fyrir nýliðum Stoke í síðasta leik. Chelsea mun blása til sóknar og freista þess að hefja nýtt taplaust tímabil á Brúnni.

Wenger í vígahug

Hætt er við því að Arsenal komi temmilega brjálað í leikinn á móti Stoke City og taki út gremjuna yfir tveggja stiga ráni Tottenham á saklausum heimamönnum. Stoke náði að lyfta sér af botnsvæðinu með erfiðum baráttusigri í vikunni og gæti sá leikur setið í þeim. Það er margt auðveldara fyrir nýtt lið í deildinni en að mæta eldklárum krakkaskara Wengers í vígahug. Kapp er þó alltaf best með forsjá og ef heimamenn ná að verjast vel og jafnvel lauma inn marki er aldrei að vita nema viðunandi úrslit náist fyrir Stoke og Wenger haldi áfram að skalla í veggi því vel má vera að hann sé besti þjálfari deildarinnar en hann höndlar mótlæti eins og Dabbi Grensás.

Leikir helgarinnar

Laugardagur 1. nóvember 2008

12.45 Everton - Fulham
15.00 Chelsea - Sunderland
15.00 Man.Utd - Hull City
15.00 Middlesbrough - West Ham
15.00 Portsmouth - Wigan
15.00 Stoke City - Arsenal
15.00 West Brom- Blackburn
17.30 Tottenham - Liverpool

Sunnudagur 2. nóvember 2008

16.00 Bolton - Manchester City

Mánudagur 3. nóvember 2008

20.00 Newcastle - Aston Villa



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.