Björgvin Páll Gústavsson varði tólf skot í seinni hálfleiknum í gær. „Þetta var eins og ég bjóst við að ef við myndum byrja vel yrði þetta auðvelt. Vörnin var góð í fyrri hálfleik og Hreiðar lokaði vel þá, það skóp sigurinn.
„Þetta var fín upphitun fyrir okkur. Við tökum alla andstæðinga alvarlega þangað til þeir sýna okkur að þeir geti ekkert en þegar við slökuðum á í seinni hálfleik létu þeir okkur finna fyrir sér,“ sagði Björgvin Páll.
Björgvin var ánægður með innkomu hins unga Arons Pálmarssonar og spilamennsku Íslands í leiknum. „Það hefði verið auðvelt að detta niður á þeirra plan en við komum stemmdir í þetta og gerðum þetta af krafi. Það var frábært að sjá Aron koma svona sterkan inn en verkefnið í Drammen verður öllu erfiðara,“ sagði Björgvin Páll en Ísland mætir Noregi í Drammen á laugardaginn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
20 flott mörk frá EM í handbolta
Danir Evrópumeistarar í handbolta
Króatar hirtu bronsið á EM
Guðjón Valur í úrvalsliði EM í Serbíu
Ísland fékk draumadrátt í umspili fyrir HM 2013