Spænskir Rasistar hafa stofnað vefsíðu í „voodoo-stíl“ með það að markmiði að eyðileggja möguleika Lewis Hamilton að verða heimsmeistari í Formúlu 1 á sunnudaginn. Sextán þúsund manns hafa skráð sig á síðuna og fleiri hundruð hafa skilið eftir ógeðfelld skilaboð á síðunni.
Maður sem kallar sig Alberto skrifar: „Blendingur, dreptu þig í bílnum þínum,“ á meðan annar rasistinn skrifar: „Ég vona að þú keyrir yfir pabba þinn í fyrsta viðgerðarhléinu, Hamilton.“
Hamilton er með sjö stiga forskot á Felipe Massa í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og dugar fimmta sætið á brautinni í Brasilíu á sunnudaginn til að verða yngsti heimsmeistarinn frá upphafi.
Á síðunni er einnig hægt skilja eftir nagla, pinna og jafnvel broddgelti á tölvulíkanni af brautinni í Brasilíu þar sem lokakeppnin fer fram. Með því vilja rasistarnir gera sitt í að skemma fyrir Hamilton.
Einn rasistinn sem kallar sig David skildi eftir brottgölt á brautinni ætlaðan Hamilton og skilaboðin: „Farðu til fjandans, bastaður. Api.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Raikkonen: Mig skorti aldrei metnað
Mistök að reka pabba sinn
„Erfitt að lýsa tilfinningunni“
Massa verður að sanna sig
Vann fyrir mömmu